Latest Tweets:
Stúdera heimspeki og viðskiptafræði við Háskóla Íslands.
Ég á Twitter & Fasbók.
Smáaletrið: Ég vitna í hina og þessa hér á síðunni. Það þarf ekki að þýða að ég sé sammála viðkomandi, þó það geti vel verið að svo sé, heldur þykir mér sjónarmiðið áhugavert eða skemmtilegt.
Þessi listi, The 50 coolest books ever sem ShortList.com setti saman, minnir mig á að ég þarf að lesa meira. Miklu meira.
This sightseeing boat, Hama Yuri, was pulled 1300 feet from the coast and somehow balanced itself on a two story house during the tsunami in Japan. / The 45 Most Powerful Images Of 2011
Mynd: Nasa, 2011. / Mbl.is.
Dream Big - Rubik Cube Martin Luther King Portrait
Designer Pete Fecteau, spent 40 hours configuring a monumental mosaic of Martin Luther King Jr. made entirely out of Rubik’s Cubes called Dream Big. Each cube was “reversed solved” or twisted so that one of the faces maps it’s nine stickers into the total image, that’s 38,178 stickers in total!
With a computer generated draft as his blueprint, Pete used 4,242 Rubik’s Cubes to construct the 18’ 6” x 9’ 8” piece that, once completed, weighed about half a ton.
(Source: egillhardar)
Kvikmyndin The Rum Diary mun brátt líta dagsins ljós. Byggð á skáldsögu eftir meistara Hunter S. Thompson.
"To the size of the state there is a limit, as there is to plants, animals and implements, for none of these retain their facility when they are too large."
Aristotle
Stefán Snævarr heimspekingur ræddi nýútkomna bók sína í Kastljósi í gærkvöldi: Kredda í kreppu. Frjálshyggjan og móteitrið við henni.
Hann talaði um mikilvægi þess að hafa hemil á atvinnulífinu og stjórna því.
Heimspekingurinn sagðist fá grænar bólur þegar hann heyrði á hagfræðinginn Milton Friedman minnst.
Við það rifjaðist upp fyrir mér mikilvæg ummæli Friedmans:
“One of the great mistakes is to judge policies and programs by their intentions rather than their results.”
Við þurfum jú að lifa með niðurstöðunum en ekki áformum.
Miðstýring er ennfremur siðfræðilega röng. Ég mun minnast á það aftur á eftir.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson sat á móti Stefáni og var fenginn í þáttinn til að verja frjálshyggjuna. Líflegar umræður eru skemmtilegra sjónvarpsefni en allt að því einræða um einhverja skoðun.
Hannes Hólmsteinn sagði eitt sem er sérstaklega erfitt að vera sammála. Hann sagði að við hefðum betur sett fjölmiðlalög 2004.
Ja hérna hér.
Hinn gamalreyndi ritstjóri Styrmir Gunnarsson lagði það einmitt til í Sunnudagsmogganum fyrir skömmu að reglum um eignarhald á fjölmiðlun verði tekið til gagngerrar endurskoðunar.
Það er því enn og aftur verið að reyna að hamra á þessu sjónarmiði.
Sannast sagna þykja mér þessar hugmyndir skelfilegar.
Fjölmiðlalögin 2004 gengu þvert gegn grunnhugmyndum um atvinnufrelsi.
Margir hagfræðingar og heimspekingar eru sammála um að heppilegasti jarðvegur fyrir framfarir er frelsi.
En þetta snýst ekki einvörðungu um framfarir, heldur einnig um siðfræði.
Að banna einhverjum að eiga fyrirtæki, hvort sem það er verslun eða fjölmiðill, er siðfræðilega rangt, enda þýðir það að allir eru ekki jafnir fyrir lögum.
Heimspekingurinn Ayn Rand kom með nokkuð skemmtilegt sjónarhorn á rétt neytenda:
“There is no such thing as “consumers’ rights,” just as there can be no “rights” belonging to some special group or race and to no others. There are only the rights of man—rights possessed by every individual man and by all men as individuals.”